Friday, October 30, 2009

Er enn á lífi

Held að enginn skoði þetta blogg lengur, en ef ske kynni amma fengi að skoða þetta einhverja helgina...
Jæja, helst í fréttum;
Buín að dreyma það amk tvisvar að ég sé komin heim til mín. Yfirleitt er ömurlegt veður í þessum draumum, og ég er að stússast eitthvað í stressi, keyra um á subarunum eða eitthvað. Samt rosaleg indælt að dreyma svona, er eiginlega hissa stundum þegar ég vakna í eigin rúmi.
Ég hef ekki verið heima í heilt ár! Algjör eilífð! Við lofum því að kíkja amk tvisvar á næsta ári, þetta var svo dýrt síðasta sumar að flytja að við höfðum eiginlega ekki efni á neinum ferðum. Stendur allt til bóta... Hlakka sérstaklega til að sjá vini mína sem eiga börn, svona krútt vaxa svo rosalega hratt að manni svimar bara. Berglind frænka er búin að bjóða mér í kaffi og kökur, og ég mun væntanlega bjóða sjálfri mér í kaffi hjá Gunnhildi ofumömmu og famílíu.

Var í Danmörku með svönsu og litlu krúttunum, lifðum aðallega á múffum og kóngamatseld frá Halla. Kláruðum svo hrikalega mikið magn af víni yfir vikuna að ég vil ekki einu sinni hugsa um það. Fórum varla út úr húsi (nema í dýragarðinn einu sinni og smá í búðir) og þar var heeeerlijk! Minna heerlijk er kílóið sem ég bætti á mig þar, og hefur ekki tekist að losa mig við. Svansa var líka í smá átaki, við lærðum saman að búa til remúlaði úr grískri jógúrt og það var algjört namm! Hvernig hefur gengið annars með skokkátakið svansa mín? Ég er búin að vera frekar löt...

Vorum að kaupa risasjónvarp! Jæja, 40 tommur, og við fáum það ekki fyrr en í næstu viku. Með alls kyns möguleikum til að tengjast netinu og spila beint af tölvu, svo ég þarf ekki lengur að horfa á supernatural á fartölvunnu . N'u munum við loksins fá eitthvað fyrir sjónvarpsáskriftina okkar ;) Varð svo svakalega abbó þegar ég sá fl0tta sjónvarpið þeirra svönsu og Halla, okkar er næstum því alveg eins flott. Þetta er samsung B650 (minnir mig) og á að vera mjög nýmóðins hvað varðar alla tengi-möguleika.

Eg er alltaf að heyra af fólki sem er atvinnulaust, núna síðast Kötju vinkonu (frá Austurríki) sem var að útskrifast. Hún er alltaf að reyna að plata okkur með sér til Asíu eftir áramót, þá verður hún nottlega að hafa tekjur greyið ;) Eruð þið með plön fyrir næsta sumar?

Endlega látið heyra í ykkur,

Helga

Btw, daði þakkar fyrir allar afmæliskveðjur sem hann fékk á facebook. Veit ekki hvort hann gat hugsað sér að logga sig inn og kommenta, en hann sá kveðjurnar og fanns það voða sætt ;)

5 comments:

Anonymous said...

hæ hæ
Ég kíki alltaf á síðuna þína og finnst svo gaman að lesa hvað þið eruð að gera af ykkur í Amsterdam. Skokkið gengur fínt og matarræðið líka. Vigtaðið mig í morgun og það eru tvö kg farin. Fékk mér samt franskar og hollt remúlaði í gærkveldi. Allavegana, mér fannst svo gaman að hafa þig hjá okkur í Odense og er strax farin að hlakka til að sjá þig aftur:O) Knús og kossar frá Svönsu

Anonymous said...

Hæhæ, ég les líka alltaf síðuna þína á endanum... Þú bara skrifar svo sjaldan þannig að ég kíki bara svo sjaldan þá... Ég og mamma erum ekkí búnar að vera alveg nógu duglegar í ræktinni en búnar að fara fáein skipti... Vorum samt rosa duglegar fyrst...

Hey, nenniru að muna að koma með litlu ferðapressukönnuna mína með þér þegar þú kemur, ég gleymdi henni hjá þér í sumar og er búin að sakna hennar sérstaklega mikið-það er ógeðslega vont kaffi í skólanum:Þ...:D
Kv. Jóhanna

Unknown said...

Hæ hæ

Ég kíki alltaf af og til á síðuna! Hef reyndar ekki kíkt lengi þar sem ég var í Singapore.

Þér er hérmeð boðið í kaffi hjá mér um jólin og líklega verða einhverjar heimabakaðar kökur með því. Sjáum til hvað ofurmamman hefur mikinn tíma fyrir svoleiðis stúss!?!?

Hlakka til að sjá þig um jólin og spjalla :-)

Anonymous said...

Mig langar í fleiri fréttir:O) og hvað með smartsímann, mig vantar símanúmerið hjá þér.Hef ekki heyrt í þér svo lengi

og hvað með páskana?hvað á að gera þá, ég verð nefnilega í 2 1/2 vikna fríi:O)
kveðja Svansa

Anonymous said...

heyrðu, það er bara orðið frekar stuttu þangað til við sjáumst af holdi og blóði...
Kv. jóhanna